User manual
Efnisyfirlit
Öryggisupplýsingar 2
Öryggisleiðbeiningar 3
Vörulýsing 5
Fyrir fyrstu notkun 5
Dagleg notkun 5
Viðbótarstillingar 6
Góð ráð
6
Umhirða og þrif 9
Bilanaleit 11
Innsetning 12
Tæknilegar upplýsingar 12
Orkunýtni 13
Með fyrirvara á breytingum.
Öryggisupplýsingar
Fyrir uppsetningu tækisins og notkun þess, skal lesa meðfylgjandi
leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir tjóni ef röng
uppsetning eða notkun veldur líkamstjóni eða skemmdum. Alltaf skal geyma
leiðbeiningarnar með heimilistækinu til síðari notkunar.
Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
• Þetta tæki mega börn nota frá 8 ára aldri og einnig aðilar með skerta
líkamlega hæfni, skynjun eða geðslag eða sem skortir reynslu eða
þekkingu ef viðkomandi hafa fengið kennslu eða leiðbeiningar um hvernig
nota skal tækið á öruggan hátt og skilja þær hættur sem fylgja notkun
þess.
• Börn mega ekki leika sér með tækið.
• Öllum pakkningum skal halda fjarri börnum.
• Halda skal börnum og gæludýrum fjarri tækinu þegar það er í gangi eða
þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar tækisins eru heitir.
• Heimilistækið er með barnalæsingu, við mælum með notkun hennar.
• Börn mega ekki hreinsa eða framkvæma viðhald á tækinu án þess að
vera undir eftirliti.
• Halda skal börnum undir 3 ára aldri frá tækinu nema þau séu undir
ströngu eftirliti.
Almennt öryggi
• Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki og skipta um
rafmagnskapal.
• Tækið hitnar að innan þegar það er í gangi. Ekki snerta hitaelementin sem
eru í heimilistækinu. Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða til að setja
aukahluti eða eldföst mót í ofninn.
• Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
2