Notendahandbók
144
Q
4 Veldu prentunarvalkosti.
Auðkenndu eftirfarandi valkosti og ýttu á 2
til að kveikja eða slökkva á auðkenndum
valkostum (til að ljúka prentröðinni án þess
að láta þessar upplýsingar fylgja, skaltu
halda áfram að skrefi 5).
• Data imprint (Gagnaprentun): Prenta lokarahraða og ljósop á allar myndir í
prentröð.
• Imprint date (Prenta dagsetningu): Dagsetning myndatöku prentuð á allar myndir
í prentröð.
5 Ljúka prentröð.
Auðkenndu Done (Búinn) og ýttu á J til að
ljúka prentröðinni.
D Print Set (DPOF) (Prenthópur (DPOF))
Til að prenta valda prentröð þegar myndavélin er tengd við PictBridge prentara, skaltu velja
Print (DPOF) (Prenta (DPOF)) í PictBridge valmyndinni og fylgja skrefunum í „Prenta
margar myndir“ til að breyta og prenta í valinni röð (0 139).
Valkostirnir fyrir DPOF
dagsetningar- og gagnaprentun eru ekki studdir þegar prentað er beint í gegnum USB
tengingu; til að prenta tökudagsetningu á ljósmyndir í valinni prentröð, notaðu valkostinn
fyrir PictBridge Time stamp (Tímastimpil).
Valkostinn Print set (DPOF) (Prenthópur (DPOF)) er ekki hægt að nota ef það er ekki nóg
pláss á minniskortinu til að geyma prentröðina.
NEF (RAW) ljósmyndir (0 62) er ekki hægt að velja með þessum valkosti.
Hægt er að búa til
JPEG afrit af NEF (RAW) myndum með því að nota NEF (RAW) processing (NEF (RAW)
vinnsla) valkostinn í lagfæringavalmyndinni (0 184).
Það getur verið að prentröð prentist ekki rétt út ef myndum er eytt með því að nota tölvu eða
annan búnað eftir að prentröðin var búin til.