Instruction for Use

7
Íslenska
Notkun hraðastillingar – 10 þrepa vélar
Allar hraðastillingar byrja sjálfkrafa með Soft Start™ sem þýðir að vélin byrjar á
lægri hraða þegar hún er sett í gang til að koma í veg fyrir skvettur í byrjun. Hún
eykur svo hraðann fljótlega upp í það þrep sem stillt er á.
Hraðastillingarþrep
1 BLÖNDUN Hæg hreyfing, blandar og mylur,
byrjunarstig allrar vinnslu. Notað til að
bæta í hveiti og þurrum efnum í deig og
blanda vökva í þurr efni. Notið ekki þetta
þrep til að blanda eða hnoða gerdeig.
2 HÆG HRÆRUN Hæg hreyfing, blandar og mylur hraðar.
Notað til að blanda og hnoða gerdeig,
þykk deig og sælgæti. Byrjunarstig fyrir
kartöflumús og annað grænmetismauk.
Notað til að hræra smjörlíki saman við
hveiti og til að hræra þunn og blaut deig.
Notað þegar dósaopnari er settur í tengið.
4 HRÆRUN Notað til að hræra meðalþykk deig svo
sem smákökur og til að krema sykur og
smjör eða bæta sykri út í eggjahvítur fyrir
marens. Meðalhraði fyrir kökur. Notað á
aukahlutina hakkavél, rifjárn, pastarúllu
og grænmetspressu.
6 HRÖÐ HRÆRUN Hröð hrærun eða þeyting. Notað sem
lokastig á kökudeig, kleinuhringi og önnur
deig. Hæsti hraði fyrir kökudeig. Notað
þegar sítruspressan er sett í tengið.
8 ÞEYTING Notað til að þeyta rjóma, eggjahvítur og
glassúr.
10 HRÖÐ ÞEYTING Notað til að þeyta minni skammta af
rjóma, eggjahvítur eða til að ljúka við
kartöflumús. Notað á aukahlutina
pastapressu og kornkvörn.
ATH: Heldur ekki háum hraða ef álagið er
mikið svo sem við notkun pastapressu og
kornkvarnar.
Notið þrep 2 á gerdeig. Ef önnur þrep eru notuð er hætta á að vélin sæki
afKnead™ deigkrókurinn hnoðar flest gerdeig á innan við 4 mínútum.