Artisan® WAFELMACHINE Artisan® VOHVELIRAUTA Artisan® Waffle Baker Artisan®-VAFFELBAGER GAUFRIER Artisan® Artisan® Waffle Baker Artisan WAFFELEISEN Artisan® VÖFFLUJÁRN WAFFLE BAKER Artisan® Μηχανή για Βάφλες Artisan® INSTRUCTIES EN RECEPTEN INSTRUCTIONS AND RECIPES MODE D’EMPLOI ET RECETTES ® BEDIENUNGSANLEITUNG UND REZEPTE ISTRUZIONI PER L’USO E RICETTE GOFRERA Artisan® KÄYTTÖ-JA VALMISTUSOHJEET INSTRUKTIONER OG OPSKRIFTER INSTRUÇÕES E RECEITAS LEIÐBEININGAR OG UPPSKRIFTIR OΔHΓΙEΣ KAI ΣYNT
Efnisyfirlit Öryggi vöfflujárns............................................................................................................................. 1 Kröfur um rafmagn........................................................................................................................... 1 Mikilvæg öryggisatriði....................................................................................................................... 2 Eiginleikar vöfflujárns...........................................
Öryggi vöfflujárns Öryggi þitt og öryggi annarra er mjög mikilvægt. ¨Mörg mikilvæg öryggisatriði eru í þessari handbók og á tækinu. Alltaf skal lesa öll öryggisfyrirmæli vel og fara eftir þeim. NING Þetta er öryggisviðvörunarmerki. Þetta er merki um mögulega hættu sem getur ógnað lifi eða heilsu þinni og annarra. Öllum öryggisviðvörunarmerkjum fylgja fyrirmæli og annaðhvort orðið “HÆTTA” eða “VIÐVÖRUN”.
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI Þegar raftæki eru notuð skal alltaf fylgja grundvallaröryggisvarúðarráðstöfunum til að draga úr hættunni á eldsvoða, raflosti, og/eða meiðslum á fólki, að meðtöldu eftirfarandi: 1. Lestu allar leiðbeiningar. 2. Ekki snerta heita fleti. Notaðu handföng eða hnúða. 3. Til að vernda gegn raflosti skal ekki kaffæra snúru, klær eða vöfflujárn í vatni eða öðrum vökvum. 4. Aftengdu vöfflujárnið úr tengli þegar það er ekki í notkun og fyrir hreinsun.
Eiginleikar vöfflujárns ARTISAN Gerð 5KWB100 Artisan® Vöfflujárn Bökunareining með söluhönnun Die-Cast málmundirstaða Tvíhliða, skellaga bökunareining snýst til veita stöðugar vöfflur með lágmarks bilum og götum. Bökunarlokin eru úr burstuðu ryðfríu stáli; hitahert fenól-handföng á lokinu haldast köld viðkomu. Endingargóð málmundirstaðan veitir stöðugan grunn fyrir bökunareininguna.
Eiginleikar vöfflujárns Rafmagnshnappur ( ) Þegar ýtt er á rafmagnshnappinn ( ) kviknar eða slökknar á hitaelementi bökunareiningarinnar. Þegar kveikt er á járninu lýsir vísiljósið. Forhitunarvísir Vísiljósið leiftrar þar til járnið er að fullu forhitað. Þegar hagstæðasta hitastigi er náð heyrist tónn og vísiljósið glóir stöðugt.
Að nota vöfflujárnið Vöfflujárnið notað í fyrsta sinn Unnið með vöfflujárninu Vöfflujárnið gæti gefið frá sér lítilsháttar lykt eða reyk í fyrsta sinn sem það er notað. Það er eðlileg afleiðing af framleiðsluferlinu. Lyktin eða reykurinn er skaðlaus og hverfur fljótt en gæti samt haft áhrif á bragð fyrstu vöfflunnar sem bökuð er á hvorri hlið járnsins. Fyrir besta árangur er mælt með því að þessum fyrstu vöfflum sé fleygt. 1. Tengdu snúru vöfflujárnsins við jarðtengdan tengil.
Að nota vöfflujárnið 4. Bíddu eftir að vöfflujárnið forhitni. Þegar vöfflujárnið hefur náð vinnuhita heyrist tónn og vísiljósið hættir að leiftra og glóir stöðugt. Vísirinn á hitamælisskífunni vísar einnig á breiðari línuna á skífunni. 6. Opnaðu lokið á járninu með því lyfta efsta handfanginu. Gættu þess að lokið sitji tryggilega upp að undirstöðunni áður en þú sleppir handfanginu: ef þetta er ekki gert getur bökunareiningin snúist óvænt þegar handfanginu er sleppt. 5.
Að nota vöfflujárnið 10. Ef óskað er eftir annarri vöfflu skal opna lok járnsins og fylla vöffluplötuna jafnt með deigi. Lokaðu lokinu á járninu. 11. Snúðu bökunareiningunni þannig að lokið með hitamælisskífunni snúi aftur upp. 12. Þegar skjár bökunartímastillisins nær núlli hljómar röð tóna, bakgrunnur skjás bökunartímastillisins verður rauður og tímastillirinn byrjar að telja upp. 8. Snúðu bökunareiningunni þannig að lokið á móti snúi upp.
Að nota vöfflujárnið 15. Þegar bökun er lokið skal ýta á rafmagnshnappinn ( ) til að slökkva á bökunareiningunni. Skildu lok járnsins eftir opið til að hraða kælingu bökunareiningarinnar. Hætt við niðurtalningu tímastillis bökunar Til að hætta við niðurtalningu tímastillisins skal ýta á endurstillingarhnappinn ( ). Skjár bökunartímastillisins hverfur aftur til fyrri tímastillingar.
Ábendingar um bökun & framreiðslu • Hvort sem verið er að baka eina eða tvær vöfflur skal alltaf snúa bökunareiningunni eftir að vöffluplatan hefur verið fyllt. Það þekur bæði efri- og neðri vöffluplöturnar deigi og tryggir besta þéttleika. • Ekki yfirfylla vöffluplöturnar. Helltu deiginu á miðja plötuna og dreifðu því síðan jafnt út til kantanna með mjúkum spaða eða botninum á ausu úr öðru efni en málmi. Deigið ætti næstum að hylja toppana á vöffluristinni.
Bilanaleit Vöfflujárnið gæti gefið frá sér lítilsháttar lykt eða reyk í fyrsta sinn sem það er notað. Það er eðlileg afleiðing af framleiðsluferlinu. Lyktin eða reykurinn er skaðlaus og hverfur fljótt en gæti samt haft áhrif á bragð fyrstu vöfflunnar sem bökuð er á hvorri hlið járnsins. Fyrir besta árangur er mælt með því að þessum fyrstu vöfflum sé fleygt. Gufa myndast í hverri bökunarhringrás og raki getur myndast á lokum járnsins. Þetta er eðlilegt.
Banana- og valhnetuvöfflur 1 teskeið sykur ½ teskeið salt 15 g þurrger ½ teskeið mulið engifer 120 ml vatn 355 ml undanrenna 120 g smjörlíki, í teningum 4 egg 25 g púðursykur 320 g sneiddir bananar 120 g saxaðar valhnetur Taktu stóra blöndunarskál, blandaðu í hana hveiti, sykri, salti, geri og engifer með hræraranum á hraðanum 1 í 30 sek. og settu svo til hliðar. Settu vatn, mjólk og smjörlíki í miðlungsstóran skaftpott.
Súkkulaðibitavöfflur 475 g hveiti Settu hveiti, strásykur, lyftiduft, salt og kanil (ef þess er óskað) saman í stóra blöndunarskál. Bættu mjólk, smjörlíki og eggjum við og hrærðu á hraðanum 2 í 2 mín. þar til það er orðið rakt. Hækkaðu hraða hrærarans upp í 6 þar til að deigið er orðið létt og dúnkennt. Einhverjir kekkir geta orðið eftir. Bættu súkkulaðibitunum við og hrærðu varlega með sleikju.
Chantilly-vöfflur 200 g hveiti 250 ml köld mjólk 6 eggjarauður 200 g brætt smjörlíki 16 g vanillusykur 4 g lyftiduft 1 klípa af salti 12 eggjahvítur, stífþeyttar (notið þeytarann á hraðanum 10 í 1 mín. og 45 sek.) Notaðu hrærarann til að þeyta eggjarauðurnar með köldu mjólkinni á hraðanum 4 í 1 mín. í blöndunarskálinni. Blandaðu hveitinu og lyftiduftinu hægt saman við, síðan brædda smjörlíkinu, vanillusykrinum og saltinu á hraðanum 4 í 1 mín. og 30 sek.
Vöfflur með kanil 500 g hveiti 250 ml volg mjólk Settu 200 g af hveiti, púðursykurinn, gerið og kanilinn í stóra blöndunarskál. Notaðu hrærarann og blandaðu á hraðanum 2 í 15 sek. Gerðu holu í miðjuna og settu mjúka smjörið, eggin og svolítið af volgri mjólk út í. Byrjaðu að blanda á hraðanum 2 í 30 sek., haltu áfram á hraðanum 4 í 1 mín. á meðan restinni af hveitinu er bætt við smátt og smátt.
Mjúkar vanilluvöfflur 500 g sjálflyftandi hveiti 300 g brætt smjörlíki Notaðu þeytarann til að þeyta eggin, eins og fyrir eggjaköku, í stórri skál á hraðanum 2 í 1 mín. Bættu bræddu smjörlíki og klípu af salti saman við. Blandaðu 325 g af sykri. Notaðu hrærarann og blandaðu á hraðanum 1 í eina mínútu. Blandaðu vanillusykrinum og bolla af vatni saman við. Hækkaðu hraðann upp í 6 og hrærðu í aðra mínútu.
Ljúffengar vöfflur með bjór 250 g hveiti 175 g strásykur 3 egg 15 g þurrger 250 ml dökkur bjór 1 klípa af salti 125 g brætt smjörlíki Settu öll hráefnin (fyrir utan smjörlíkið) í stóra blöndunarskál og hrærðu af krafti með þeytaranum á hraðanum 6 í 2 mín. þar til deigið er orðið mjúkt. Láttu bíða í 30 mínútur og bættu 125 g af bræddu smjörlíki við rétt fyrir bökun. Skiptu þeytaranum út fyrir hrærarann og blandaðu á hraða 1 í um það bil 30 sek. til viðbótar.
KitchenAid® Artisan® Ábyrgð á vöfflujárni Lengd ábyrgðar: KitchenAid greiðir fyrir: KitchenAid greiðir ekki fyrir: Full ábyrgð í tvö ár frá kaupdegi. Varahluti og viðgerðarkostnað til að lagfæra galla í efni eða handverki. Viðurkennd KitchenAid þjónustumiðstöð verður að veita þjónustuna. A. Viðgerðir þegar vöfflujárnið er notað til annarra aðgerða en venjulegar matreiðslu. B. Varahluti og viðgerðarkostnað til að lagfæra galla í efni eða handverki.
® Skrásett vörumerki KitchenAid, BNA. Bandarikin. ™ Vörumerki KitchenAid, BNA. Bandarikin. Íslenska © 2008. Allur réttur öll réttindi áskilin. Efnislýsing getur breyst án fyrirvara.