Model 5KMT2204 Model 5KMT4205 W10506838A_01_EN.
Leiðbeiningar fyrir brauðrist Efnisyfirlit ÖRYGGI BRAUÐRISTAR Mikilvæg öryggisatriði.............................................................................................150 Kröfur um rafmagn.................................................................................................151 Förgun rafbúnaðarúrgangs......................................................................................152 HLUTAR OG EIGINLEIKAR Hlutar brauðristar...........................................................
Öryggi brauðristar Öryggi þitt og öryggi annarra er mjög mikilvægt. Við höfum sett mörg mikilvæg öryggisfyrirmæli í þessa handbók og á tækið þitt. Áríðandi er að lesa öll öryggisfyrirmæli og fara eftir þeim. Þetta er öryggisviðvörunartákn. Þetta tákn varar þig við hugsanlegum hættum sem geta deytt eða meitt þig og aðra. Öllum öryggisviðvörunartáknum fylgja öryggisfyrirmæli og annaðhvort orðið „HÆTTA“ eða „VIÐVÖRUN“.
Öryggi brauðristar MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI 14. Ekki má setja of stór matvæli, álþynnuumbúðir eða áhöld inn í brauðristina þar sem þau geta valdið hættu á eldsvoða eða raflosti. 15. Eldur kann að koma upp ef brauðrist er hulin með, eða snertir eldfimt efni, þar með talið gluggatjöld, vefnaðarvöru, veggi og því um líkt, þegar hún er í notkun. 16. Ekki reyna að losa mat þegar brauðristin er í sambandi. 17. Þessi vara er eingöngu ætluð til heimilisnota.
Öryggi brauðristar Förgun rafbúnaðarúrgangs Merkingar á þessu tæki eru í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/96/EB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang (Waste Electrical and Electronic Equipment (WEEE)). Sé þess gætt að vörunni sé fargað á réttan hátt er stuðlað að því að koma í veg fyrir möguleg neikvæð áhrif á umhverfi og lýðheilsu sem komið geta fram, sé vörunni ekki fargað eins og til er ætlast.
Hlutar og eiginleikar 2-sneiða brauðrist Samlokugrind Sérlega breiðar raufar með grindum með sjálfvirkri miðjustillingu Stillihnappar Snúrugeymsla (ekki sýnd) Útdraganlegur mylsnubakki Sérlega breiðar raufar með grindum með sjálfvirkri miðjustillingu Sérlega breiðar raufar gerð þér kleift að rista á auðveldan hátt, brauð, beyglur og brauðbollur allt að 2,8 cm þykkar. Grindur með sjálfvirkri miðjustillingu hjálpa til við að tryggja jafna hitun þunnra og þykkra sneiða.
Hlutar og eiginleikar Stjórntæki Beyglu stilling Frosiðstilling Halda volgu-vísir Samloku stilling Rista/Hætta við Gaumljós lýsir/ Tímastillir telur niður Litarstýring Aðgerðin Rista/Hætta við Þetta er sjálfvirk brauðrist. Um leið og brauð er sett í aðra hvora raufina byrjar hún að síga og ristun hefst með völdum stillingum. Sum matvæli kunna að vera of létt til að setja af stað sjálfvirka ristun.
AÐ NOTA BRAUÐRISTINA ÞÍNA Fyrir fyrstu notkun Áður en þú notar brauðristina skaltu athuga sérlega breiðu raufarnar og fjarlægja allt umbúða- og prentefni sem kann að hafa fallið ofan í hana við flutning eða meðhöndlun. Ekki fara með málmhlut inn í brauðristina. Það kann að sjást léttur reykur í fyrsta sinn þegar þú notar brauðristina. Þetta er eðlilegt. Reykurinn er skaðlaus og hverfur fljótlega. ATH.: Mismunandi tegundir brauðs og rakastig kunna að útheimta mismunandi ristunarstillinga.
Sérstakar ristunarSTILLINGAR Halda volgu Rista frosið brauðmeti Ef það sem er í brauðristinni er ekki fjarlægt innan 45 sekúndna frá lokum aðgerðar lætur brauðristin það síga sjálfvirkt niður aftur og virkjar stillinguna Halda volgu með lágum í hita í allt að 3 mínútur. Halda volgu-vísirinn logar á meðan þessi aðgerð er virk. Brauðristin þín býður upp á Frosið stillingu sem varlega afþíðir og ristar frosið brauð. Notaðu Frosið aðeins fyrir frosin brauðmeti.
Sérstakar ristunarSTILLINGAR Með brauðristinni fylgir samlokugrind, og einnig er á brauðristinni sérstök stilling til að rista samlokur sem smurðar eru með þunnt sneiddu kjöti og osti. Samlokugrindin er með lömum og opnast alveg til að auðveldara sé að setja samlokur í og taka þær úr. Samlokan þín undirbúin: 1. Smyrðu létt samlokubrauðið að utan – ekki smyrja þá hlið sem snýr að fyllingunni. Ef ytri hlið brauðsins er smurð hægir það á ristingu og auðvelda hitun á fyllingunni. 2.
Umhirða og hreinsun Taktu brauðristina úr sambandi og leyfðu henni að kólna fyrir hreinsun. Taktu um miðju mylsnubakkans og dragðu hann síðan út. Hristu mylsnuna af niður í ruslafötu. Mælt er með að mylsnubakkinn sé tæmdur eftir hverja notkun. Mylsnubakkinn er aðeins þveginn í höndunum. MIKILVÆGT: Bakkinn verður heitur strax eftir ristunaraðgerð. Þurrkaðu af brauðristinni með mjúkum, rökum klút. Ekki nota pappírsþurrkur, hreinsiefni sem geta rispað eða fljótandi hreinsivörur.
Bilanaleit VIÐVÖRUN Hætta á raflosti Settu í samband við jarðtengdan tengil. Ekki fjarlægja jarðtenginguna. Ekki nota millistykki. Ekki nota framlengingarsnúru. Misbrestur á að fylgja þessum leiðbeiningum getur leitt til dauða, eldsvoða eða raflosts. ATH.: Þú kannt að sjá léttan reyk í fyrsta sinn sem þú notar brauðristina. Þetta er eðlilegt. Reykurinn er skaðlaus og hverfur fljótlega. Ef brauðristin þín virkar ekki skaltu athuga eftirfarandi: 1.
Þjónusta og ábyrgð Þjónustumiðstöðvar Öll þjónusta á hverjum stað skal veitt af viðurkenndum KitchenAid þjónustuaðila. Hafðu samband við þann söluaðila sem tækið var keypt af til að fá nafnið á næsta viðurkennda KitchenAid þjónustuaðila. EINAR FARESTVEIT & CO.HF Borgartúni 28 125 REYKJAVIK ISLAND Sími: 520 7900 Fax: 520 7910 ef@ef.is www.kitchenaid.is www.ef.is Þjónusta við viðskiptavini EINAR FARESTVEIT & CO.HF Borgartúni 28 125 REYKJAVIK ISLAND Sími: 520 7900 Fax: 520 7910 ef@ef.is www.kitchenaid.
www.KitchenAid.co.uk www.KitchenAid.eu W10506838A © 2012. All rights reserved. Specifications subject to change without notice. W10506838A_18_BkCov.